Reykjavíkurnætur: Erlendur #2 (2012)
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 285 | 2.065 kr. | ||
Geisladiskur | 2012 | Mp3 | 99 kr. | ||
Kilja | 2013 | 285 | 2.685 kr. | ||
Rafbók | 2012 | 990 kr. |
Reykjavíkurnætur: Erlendur #2 (2012)
99 kr. – 2.685 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 285 | 2.065 kr. | ||
Geisladiskur | 2012 | Mp3 | 99 kr. | ||
Kilja | 2013 | 285 | 2.685 kr. | ||
Rafbók | 2012 | 990 kr. |
Um bókina
Erlendur er nýlega genginn til liðs við lögregluna og starfið á strætum Reykjavíkur er erilsamt: umferðarslys, þjófnaðir, heimilisofbeldi, drykkja, smygl … Óútskýrt mannslát lætur hann ekki í friði. Útigangsmaður sem hann hefur hitt á næturvöktum finnst drukknaður í gamalli mógröf á óbyggðu svæði og öllum virðist standa á sama. En örlög hans ásækja Erlend og leiða hann æ dýpra inn í framandi heima borgarinnar.
Reykjavíkurnætur fjallar um fyrsta mál lögreglumannsins Erlendar, sem allir þekkja úr fyrri bókum höfundar, og er sextánda skáldsaga Arnaldar Indriðasonar.
Bækurnar um Erlend Sveinsson rannsóknarlögreglumann eru hér tölusettar eftir innri tímaröð sögunnar, Einvígið: Erlendur #1 gerist árið 1972 en Furðustrandir: Erlendur #14 2005. Útgáfuár bókanna eru innan sviga.
Bækur Arnaldar hafa mörg undangengin ár notið gríðarlegra vinsælda og hlotið frábæra dóma, jafnt hér heima sem erlendis. Þær hafa verið gefnar út á um fjörutíu tungumálum og selst í milljónum eintaka. Arnaldur hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar og breska stórblaðið The Guardian hefur sett hann efstan á lista yfir bestu evrópsku sakamálahöfunda samtímans.
ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.
5 umsagnir um Reykjavíkurnætur: Erlendur #2 (2012)
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Á alþjóðavettvangi er verðlaunahöfundurinn Arnaldur Indriðason án nokkurs vafa sá sem best fjallar um störf lögreglunnar.“
Shots Magazine
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Arnaldur bregst ekki.“
Kolbrún Bergþórsdóttir/ Morgunblaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Erlendur Sveinsson er svo sannarlega ekki horfinn, hann gengur hér aftur og það fer honum vel.“
Úlfhildur Dagsdóttir / bokmenntir.is
Nanna Rögnvaldardóttir –
„… Arnaldur í sínu allra besta formi; hér er spenna og drama á hverri síðu, í hverjum kafla. … sögumaður af Guðs náð. Þess vegna er hann einn af bestu glæpasagnahöfundum samtímans.“
Björn Ingi Hrafnsson / pressan.is
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Frábær bók og enn ein rósin í hnappagat Arnaldar.“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið