Ræningjarnir þrír
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 40 | 1.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 40 | 1.490 kr. |
Um bókina
„Illskan er oft frjór jarðvegur fyrir gæskuna, og eins getur hið góða lært eitt og annað af kænsku illskunnar.“
– Tomi Ungerer
Ræningjarnir þrír hafa verið þýddir á hátt í annan tug tungumála og selst í milljónum eintaka á þeim 45 árum sem liðin eru frá fyrstu útgáfu þeirra. Bókin er sígilt meistaraverk og löngu orðið tímabært að það líti dagsins ljós á íslensku, enda um að ræða einhverja minnisstæðustu, skemmtilegustu og fallegustu myndskreyttu barnabók allra tíma: sögu sem sýnir á óvæntan hátt hvernig hið góða getur snúið hinu illa á sitt band.
Tomi Ungerer (1931–2019) var einn hugmyndaríkasti og mikilvirkasti barnabókahöfundur okkar tíma. Ræningjarnir þrír eru í senn ljóðræn og drungaleg saga með fallegum og óvæntum endi.
Sverrir Norland íslenskaði.