punktur punktur komma strik
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Sjaldan hefur nokkur höfundur slegið jafn rækilega í gegn hjá íslenskum lesendum og Pétur Gunnarsson með skáldsögunni punktur punktur komma strik árið 1976.
Hér var eitthvað alveg nýtt á ferð; óvænt líkingamál og leiftrandi fyndni höfðaði ekki síst til yngra fólks og uppvaxtarsaga Reykjavíkurdrengsins Andra Haraldssonar varð saga heillar kynslóðar sem gjörþekkti ekki aðeins umhverfi og aðstæður, heldur einnig hugrenningar Andra og tilfinningar, sorgir hans og þrár. Jafnvel húmorinn.
Punkturinn varð margföld metsölubók eins og þær þrjár Andra-bækur sem á eftir komu. Allar segja þær sögu einstaklings í mótun, í borg sem er líka í mótun – í landi þar sem stórstígur nútíminn göslast yfir viðtekin gildi og venjur og skekur stoðir samfélagsins.
Pétur Gunnarsson er einn fjölhæfasti höfundur landsins, hefur fengist við ýmis bókmenntaform og hlotið margháttaðar viðurkenningar. Lokabók hans um Andra, Sagan öll, var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og verk hans hafa í þrígang verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
punktur punktur komma strik kemur nú út í seríunni „Íslensk klassík“.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 19 mínútur að lengd. Pétur Gunnarsson les.