Örlagadansinn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 1993 168 590 kr.
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 1993 168 590 kr.
spinner

Um bókina

Í þessari magnþrungnu spennusögu, sem gerist í Reykjavík, fáum við að kynnast íslensku glæpafélagi, sem lögreglan stendur ráðþrota yfir. Eiturlyf streyma til landsins, og morð eru framin án þess að hægt sé að rekja eitt eða neitt.

„Örninn“ forsprakkinn, er harðsvíraður náungi sem vílar ekkert fyrir sér. Hann er útsmoginn og tekst að villa á sér heimildir.

Við kynnumst einnig Hörpu, ungu stúlkunni, sem á ógnvekjandi hátt blandast inn í mál „Arnarins“ þegar fósturfaðir hennar er myrtur. Hún ásamt lögreglumanninum, Ágústi, er allt í einu orðin skotmark glæpamanna, sem aldrei gefast upp fyrr en verki þeirra er lokið.

Leikurinn berst frá Reykjavík norður í Skagafjörð, til Drangeyjar þar sem örlagadansinn er stiginn. Þetta er hörkuspennandi saga og endalokin koma mjög á óvart.


Tengdar bækur

2.090 kr.
3.690 kr.4.090 kr.
5.390 kr.
690 kr.
4.390 kr.
3.190 kr.
3.990 kr.
4.090 kr.
2.790 kr.

INNskráning

Nýskráning