Olga
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 260 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 260 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Um bókina
Olga er saga um viljasterka konu og óraunsæjan draumóramann. Hún berst gegn fordómum sinnar tíðar en hann ferðast um framandi slóðir í von um landvinninga. Þau eiga sér ólíkar rætur; hún er munaðarlaus og elst upp við harðan kost, hann við ríkidæmi og þjóðernisstolt. En þau elska hvort annað út yfir gröf og dauða.
Saga þeirra er þó ekki aðeins saga um ást í meinum, hún er líka samtvinnuð sögu Þýskalands fram eftir tuttugustu öldinni – sögu mikilmennsku og hástemmdra hugmynda um völd og yfirráð − og nær allt fram til okkar tíma í formi sendibréfa sem varpa ljósi á líf þeirra og dramatísk örlög.
Bernhard Schlink sló í gegn með skáldsögunni Lesarinn sem fór sigurför um heiminn, var kvikmynduð og þýdd á fjölda tungumála, þar á meðal íslensku. Nú sendir hann frá sér aðra magnaða bók, Olgu.
Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 6 klukkustundir og 45 mínútur að lengd. Arnar Jónsson les.
2 umsagnir um Olga
Elín Pálsdóttir –
„Schlink er mikill stílsnillingur; þessi ljúfsára ástarsaga er afar heillandi.“
Hamburger Abendblatt
Elín Pálsdóttir –
„Þetta er bók um eldheita ást sem er í senn hrífandi og ógnvekjandi, á sama hátt og það sögulega
yfirlit sem höfundurinn setur hér á svið.“
Brigitte, Hamburg