Og svo tjöllum við okkur í rallið: Bókin um Thor
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2022 | 1.490 kr. | |||
Innbundin | 2015 | 159 | 5.690 kr. |
Og svo tjöllum við okkur í rallið: Bókin um Thor
1.490 kr. – 5.690 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2022 | 1.490 kr. | |||
Innbundin | 2015 | 159 | 5.690 kr. |
Um bókina
Hann var með hausinn fullan af ótal hlutum og gat ekki munað eftir því að muna eftir öllu. Ég vissi ekki þá hvað það táknaði fyrir hann að vera með alla þessa hluti í hausnum …
Thor Vilhjálmsson var einn helsti rithöfundur landsins og þjóðkunnur sem einarður málsvari lista, menningar og mannúðar. Hann var líka óhemju svipsterkur og sópaði að sér athygli hvarvetna með öllu sínu fasi.
Sonur hans, Guðmundur Andri, hefur valið ljósmyndir úr fórum Thors til þess að minnast hans. Af næmi og listfengi dregur hann upp einstæða mynd af skapmiklum og flóknum manni sem oft átti í útistöðum við umhverfi sitt, en var jafnframt hlýr húmanisti sem lagði allt í sölurnar fyrir listina. Einlæg lýsing Guðmundar Andra á Thor og sambandi þeirra feðga er hjartnæm og minnisstæð.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 5 klukkustundir og 9 mínútur að lengd. Höfundur les.
6 umsagnir um Og svo tjöllum við okkur í rallið: Bókin um Thor
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Mikilvæg bók … Óhætt er að mæla með og gott betur.“
Birna Bjarnadóttir / Víðsjá
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Maður finnur fyrir nærveru Thors í þessari bók … þeirra samband er ofboðslega skemmtilegt … Það er í þessari bók einhver kjarni sem maður er oft að leita að í miklu stærri ævisögum.“
Haukur Ingvarsson / Kiljan
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Ævisaga ársins.“
Árni Matthíasson / Morgunblaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
„… sérlega falleg, persónuleg og vel skrifuð … Mér finnst alltaf eins og hann sé að klappa mér með orðum þegar ég les hann því það er svo mikil blíða í textanum hans … lok bókarinnar gerðu það að verkum að ég lagði hana frá mér með öndina í hálsinum.“
Ingi Freyr Vilhjálmsson / Stundin
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Framúrskarandi vel lukkað og hjartnæmt verk … fallega hugsuð, og einstaklega fallega skrifuð … Óvenjuleg ævisaga og líklega einstæð hér á landi … Tvímælalaust ein af athyglisverðustu og bestu bókum ársins.“
Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
Það er ekki ofsögum sagt að það sé vandfundinn betri liðsmaður íslenskunnar og jafn vígfimur og lipur stílisti og Guðmundur Andri. Og svo tjöllum við okkur í rallið ber þess líka öll merki. Hér birtist Thor Vilhjálmsson lesendum með ótrúlega lifandi og skemmtilegum hætti … einstaklega vel heppnuð og falleg bók sem setur ferskan tón í ævisagnaritun á Íslandi.“
Magnús Guðmundsson / Fréttablaðið