Nei
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2013 | 85 | 3.100 kr. | ||
Rafbók | 2013 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2013 | 85 | 3.100 kr. | ||
Rafbók | 2013 | 990 kr. |
Um bókina
Nei – fyrsta og eina ljóðabók Ara Jósefssonar – kemur nú út í þriðja sinn.
Hún kom út fyrst árið 1961 þegar höfundur var tuttugu og eins árs, seldist fljótlega upp en gekk milli manna í uppskriftum og ljósritum. Ari lést sviplega árið 1964 en bókin varð smám saman goðsögn og nokkur ljóð hennar, til dæmis „Leysíng“, „Stríð“ og „Trúarjátníng“, urðu klassísk í íslenskum bókmenntum. Í þessari þriðju útgáfu hefur verið bætt við þrem smásögum sem birtust í tímaritum og dagblaði meðan Ari lifði auk þess sem áður óbirtum ljóðum er skotið inn í eftirmála Silju Aðalsteinsdóttur frá annarri útgáfu, 1997.
Ari Jósefsson fæddist á Blönduósi 1939. Hann fór í Menntaskólann á Akureyri en hætti þar og hélt til Reykjavíkur þar sem hann varð fljótlega áberandi í hópi ungu skáldanna, gaf meðal annars út tímaritið Forspil með Degi Sigurðarsyni og fleirum árið 1958. Veturinn 1959-60 dvaldist hann í Barcelona en las eftir það utanskóla við Menntaskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan stúdent 1961. Sama ár kom út ljóðabókin Nei. Hann stundaði nám í íslenskum fræðum í tvö ár, hélt svo til Rúmeníu til að læra rómönsk fræði og var á heimleið þaðan þegar hann féll fyrir borð á Gullfossi og drukknaði, þann 18. júní 1964.
3 umsagnir um Nei
Kristrun Hauksdottir –
„Undragóð ljóð … einfaldlega bók sem sannir ljóðaunnendur verða að eiga í bókaskápnum ætli þeir að standa undir nafni.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið
Kristrun Hauksdottir –
„Hún átti erindi við mína kynslóð og ég heillaðist af henni ungur, en ég fæ ekki séð að fallið hafi á ljóðin síðan. Enda eru myndirnar sterkar og táknmálið sígilt og frumlegt. Hann á líka marga strengi í sinni hörpu.“
Pétur Blöndal / Morgunblaðið
Kristrun Hauksdottir –
„Mér finnst þessi bók hafa elst mjög vel og margt í þessum ljóðum hefur víða skírskotun til samtímans. Hann gæti allt eins verið að tala til okkar þegar hann yrkir um stríðsrekstur, um ástina, um ýmislegt sem tilheyrir náttúrunni og innri átökum ungs manns. Þetta er allt saman eitthvað sem við getum auðveldlega samsamað okkur. Þess vegna finnst mér frábært að þessi bók skuli nú koma út í þriðja sinn.“
Fríða Björk Ingvarsdóttir / Kiljan