Morðið í Snorralaug: Stella Blómkvist #10
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.290 kr. | Setja í körfu | |
Kilja | 2019 | 317 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Morðið í Snorralaug: Stella Blómkvist #10
990 kr. – 3.490 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.290 kr. | Setja í körfu | |
Kilja | 2019 | 317 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Um bókina
DJÖFULS PRUMPHANAR!
Stella Blómkvist slær ekki slöku við. Að þessu sinni tekst hún á við raðnauðgara í ungliðahreyfingu stjórnmálaflokks, óvægna aðför að sómamanni úr flokki prúðupilta og garfar í máli konu sem var ranglega dæmd fyrir morðtilraun á þokkafullum einkaþjálfara.
Síðan er það auðvitað þetta lík sem hún fann í Snorralaug með öxi í brjóstinu – sem hefur greinilega ekki legið þar síðan á Sturlungaöld. En erfiðasta málið bíður hennar þó heimafyrir.
Morðið í Snorralaug er tíunda bókin um stjörnulögmanninn og háskakvendið Stellu Blómkvist sem geysist leðurklædd um á silfurfáki og tekur bæði harðsnúnustu bófa og kerfiskalla í nefið.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 9 klukkustundir og 3 mínútur að lengd. Aníta Briem les.
2 umsagnir um Morðið í Snorralaug: Stella Blómkvist #10
Elín Pálsdóttir –
„Nokkurs konar Morgan Kane Íslands, nema Stella er sneggri með lagaklæki en skammbyssu.“
Kolbeinn Óttarsson Proppé / Fréttablaðið (um Morðið á Bessastöðum)
Elín Pálsdóttir –
„… undir öllum töffaraskapnum leynist kona full af réttlætiskennd, kona sem er alltaf tilbúin að ráðast að klíkuskap karla og berjast fyrir réttindum þeirra sem minna mega sín (helst þó gegn greiðslu).“
Úlfhildur Dagsdóttir / bokmenntaborgin.is (um Morðið í Gróttu)