Mennska
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2024 | 239 | 5.490 kr. | ||
Rafbók | 2024 | - | 3.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2024 | 239 | 5.490 kr. | ||
Rafbók | 2024 | - | 3.690 kr. |
Um bókina
Bjarni Snæbjörnsson ólst upp á Vestfjörðum við algeran skort á hinsegin fyrirmyndum. Það eina sem hann heyrði um aðra homma var að þeir væru öfuguggar og kynvillingar. Til að lifa af spilaði hann eftir þeim reglum sem hann taldi gilda en í leiðinni afneitaði hann sjálfum sér með öllum tiltækum ráðum. Hér segir Bjarni, með aðstoð dagbóka sinna og bréfaskipta við fjölskyldu og vini, frá leiðinni út úr skápnum. Hann lýsir á hispurslausan hátt ævintýralegri för um heiminn, erfiðum tímum, ástum og kynlífi, litlum og stórum sigrum í lífi og leiklist – ásamt áralangri sjálfsvinnu til að ná sátt við sína margbrotnu og litríku mennsku.
Mennska er aðgengileg og hrífandi lesning sem á erindi við alla sem hafa glímt við skömm og reynt að skila henni, finnst erfitt að taka pláss í samfélaginu eða hafa fórnað hluta af sjálfum sér af ótta við viðbrögð annarra.
1 umsögn um Mennska
Jón Gunnarsson –
„Hann berskjaldaði sig á sviði í söngleiknum Góðan daginn, faggi og nú fylgir hann þeirri frábæru sýningu eftir með stórkostlegri bók, Mennsku. Hún er vel skrifuð, vel uppbyggð, einlæg og falleg. Hún opnar manni sýn, gleður mann, gerir mann reiðan og svekktan, breytir manni og kemur út á manni tárunum. Eiginlega bara alveg eins og góð bók á að vera.“
Steingerður Steinarsdóttir/ Lifðu núna