Með á nótunum 2 + CD

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2010 80 2.715 kr.
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2010 80 2.715 kr.
spinner

Um bókina


Með á nótunum 2 er sjálfstætt framhald bókarinnar Með á nótunum sem notið hefur mikilla vinsælda. Hér eru enn fleiri skemmtilegir hreyfisöngvar og þulur sem gaman er að læra og rifja upp, tæplega sextíu talsins.

Öll lögin eru fallega myndskreytt og þeim fylgja útskýringar á hreyfingum þar sem stuðst er við tjáningarformið „Tákn með tali“. Aftast í bókinni eru nótur að öllum lögunum ásamt einföldum gítar- og píanóhljómum.

Geisladiskur fylgir bókinni þar sem öll lögin og þulurnar eru flutt.

Höfundurinn Hrafnhildur Sigurðardóttir er grunnskólakennari að mennt og með 8. stig í söng. Hún er söngelsk fjögurra barna móðir og kennari á námskeiðinu Með á nótunum sem ætlað er ungum börnum, foreldrum þeirra og leikskólahópum. Sigríður Ásdís Jónsdóttir myndskreytti og Sigrún Andrésdóttir sá um nótnaskrift.

„Vísurnar í bókinni eru alls 58 … Gamli Nói, Meistari Jakob og Maðurinn með hattinn … Teikningarnar í bókinni eru ágætar, margar skemmtilega útfærðar til að dýpka skilning yngstu lesanda á efni laganna.“

Birta Björnsdóttir / Morgunblaðið

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning