Maðurinn sem hataði börn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2014 250 3.390 kr.
spinner
Rafbók 2014 490 kr.
spinner

Maðurinn sem hataði börn

490 kr.3.390 kr.

Maðurinn sem hataði börn
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2014 250 3.390 kr.
spinner
Rafbók 2014 490 kr.
spinner

Um bókina

Sylvek býr hjá ömmu sinni sem tuðar yfir því að ekkert gerist í Reykjavík – ekki miðað við iðandi mannlífið í Barselóna þar sem þau bjuggu áður. En svo fer allt af stað.

Einhver fer að myrða unga drengi í hverfinu. Um svipað leyti flytur dularfullur leigjandi með ófrýnilegan hund heim til Sylveks. Sá segist hata börn. Inn í söguna fléttast frægur rithöfundur, reffileg blaðakona, lögga sem er hrædd við blóð, hin ógurlegu steratröll og síðast en ekki síst Sjónvarp Stasímon þar sem stendur til að kortleggja lífið í Reykjavík fyrir raunveruleikasjónvarpsþátt sem á engan sinn líka.

Þórarinn Leifsson hefur áður sent frá sér Leyndarmálið hans pabba, Bókasafn ömmu Huldar og Götumálarann. Þórarinn fer ótroðnar slóðir í bókum sínum sem allar hafa hlotið frábærar viðtökur gagnrýnenda á Íslandi og verið þýddar á fjölda tungumála.

Maðurinn sem hataði börn var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barnabóka.

 

4 umsagnir um Maðurinn sem hataði börn

  1. Kristrun Hauksdottir

    „… stórskemmtilegt verk. Það skilur eftir sig spurningar, bæði um verkið sjálft og það þrekvirki sem höfundi tekst, að semja sögu sem er eins fyndin, gagnrýnin og margslungin og raun ber vitni. Einnig sitja eftir spurningar um hvað telst viðeigandi fyrir börn annars vegar og fyrir fullorðna hins vegar.“
    Sólveig Ásta Sigurðardóttir / Sirkústjaldið

  2. Kristrun Hauksdottir


    „Í Manninum sem hataði börn tekst Þórarinn Leifsson á við háalvarleg málefni, málefni sem standa íslensku samfélagi nærri og gera þau fyrir vikið enn ógnvænlegri. Sprúðlandi húmor og góð persónusköpun koma hins vegar í veg fyrir að lesandanum líði eins og hann sé að lesa virkilega niðurdrepandi úttekt á samfélagsmeinum Reykjavíkurborgar og bókin er í stuttu máli fantaflott og gott og vandað dæmi þess að íslenskar barnabækur eigi framtíðina fyrir sér.“
    Helga Birgisdóttir / DV

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

1 2 3 4 5

Tengdar bækur

4.190 kr.
4.190 kr.
4.190 kr.
4.190 kr.
1.990 kr.3.490 kr.
Bekkurinn
4.390 kr.

INNskráning

Nýskráning