Ljósmóðirin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2015 | 1.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2015 | 1.490 kr. |
Um bókina
Ljósmóðirin er söguleg skáldsaga sem segir sögu Þórdísar Símonardóttur ljósmóður á Eyrarbakka á árunum í kringum aldamótin 1900. Tvívegis fann hún ástina og tvívegis glataði hún henni. Hún barðist gegn yfirgangi og kúgun valdamanna sem beittu öllum ráðum til að beygja hana niður í duftið. Hún gafst aldrei upp, reis á fætur þegar hún var snúin niður og glataði aldrei trúnni á hugsjónir sínar.
Eyrún Ingadóttir byggir þessa áhrifamiklu bók á heimildum af ýmsu tagi um ævi og störf Þórdísar. Með eftirminnilegum hætti dregur hún persónur og atburði fortíðarinnar út úr skjalasöfnum inn í heillandi heim skáldsögunnar. Höfundur er sagnfræðingur að mennt og hefur áður skrifað ævisögur og önnur rit um sagnfræðileg efni, þar á meðal Að Laugarvatni í ljúfum draumi (1995) sem rekur sögu Húsmæðraskólans á Suðurlandi.