Ljósaskipti
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2008 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2008 | 990 kr. |
Um bókina
Ljósaskipti, frumraun Stephenie Meyer í skáldsagnagerð, hefur slegið í gegn um allan heim hjá unglingum jafnt sem fullorðnum og selst í bílförmum. Bókin var og er á metsölulista New York Times; á lista Publishers Weekly yfir bestu bækur ársins; útnefnd besta bók áratugarins hingað til hjá Amazon; á úrvalslista Teen People.
„Ég vissi bara þrennt. Í fyrsta lagi var Edward vampíra. Í öðru lagi þyrsti hann í blóð mitt – og ég vissi ekki hve óviðráðanlegur sá þorsti var. Og í þriðja lagi var ég algjörlega yfir mig ástangin af honum.“
Isabella Swan flytur til smábæjarins Forks þar sem hún kynnist Edward Cullen, dularfullum og gullfallegum pilti, og leyndardómsfullri fjölskyldu hans. Þau Edward verða innilega ástfangin en málin flækjast þegar á daginn kemur að Edward er vampíra. Bella þráir ekkert heitar en að vera með Edward, sama hvað það kann að kosta hana, en hún sér ekki fyrir hætturnar sem steðja að henni og öllum sem henni eru kærir.
„Ég hafði aldrei velt því sérlega mikið fyrir mér hvernig ég myndi deyja … en það hafði aldrei hvarflað að mér að það yrði svona … Veiðimaðurinn brosti vingjarnlega og gekk í hægðum sínum yfir gólfið til að drepa mig.“
Magnea J. Matthíasdóttir þýddi.
6 umsagnir um Ljósaskipti
Elín Pálsdóttir –
„Þetta er ein sú rosalegasta bók sem ég hef lengi lesið…hún var góð strax frá fyrstu blaðsíðu … Mér finnst það algjörlega SKYLDA mín að segja ykkur hvað mér fannst þessi bók góð.“
Kolbrún Ósk Skaftadóttir / Eymundsson
Elín Pálsdóttir –
„ … skemmtileg aflestrar … ég hvolfdi mér svikalaust í heillandi heim vampýrunnar.“
Úlfhildur Dagsdóttir / http://www.bokmenntir.is
Elín Pálsdóttir –
„Þegar vel er að verki staðið eru blóðsugubækur dásamleg skemmtun og í þessu tilfelli svínvirkar þetta allt saman.“
Þórarinn Þórarinsson / Nýtt líf
Elín Pálsdóttir –
„Lesendur munu gleypa hana í sig viðþolslausir af eftirvæntingu.“
Publishers Weekly
Elín Pálsdóttir –
„Kolsvört og grípandi ástarsaga.“
Booklist
Elín Pálsdóttir –
„Háskinn og spennan í sögunni ná hámarki um leið og dulmagn leyndrar ástar og bældra tilfinninga brýst fram í ógnvekjandi baráttu fyrir lífinu … Lesendur bókarinnar geta vart beðið eftir að sökkva tönnunum í meira.“
School Library Journal