Litríkar lykkjur úr garðinum
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 136 | 3.890 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 136 | 3.890 kr. |
Um bókina
Heklað, prjónað og saumað út að sumarlagi Hér bregða hönnuðirnir Arne og Carlos á leik með fjölmörg skemmtileg verkefni og sækja innblástur í garðinn sinn. Blóm og fiðrildi breytast í nálapúða, hitaplatta, sessur og aðra heklaða eða prjónaða smáhluti. Hagamús, býfluga og blómabörn birtast sem prjónuð leikföng og stjúpurnar í garðinum verða fyrirmyndir að útsaumuðum púðum. Hlýleg teppi, hekluð eða prjónuð úr garnafgöngum, eru algjör nauðsyn utan- sem innandyra og gleðja augað.
Litríkar lykkjur úr garðinum er einstaklega lífleg og falleg bók fyrir hannyrðafólk og aðra fagurkera. Verkefnin eru fjölbreytt – bæði stór og smá – og henta byrjendum jafnt sem lengra komnum.
„Litríkar lykkjur úr garðinum eftir Arne og Carlos er bók fyrir alla þá sem unun hafa af hannyrðum. Þeir félagar eru sannir listamenn í höndunum og sýna hvernig á að búa til teppi, handklæði, sessur, mottur, poka, platta og púða og ýmislegt fleira. Litadýrð ræður svo ríkjum hjá þessum flinku og hugmyndaríku félögum. Algjörlega ómissandi bók fyrir þá sem vilja hekla, prjóna og sauma.”
Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið