Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2014 | 392 | 990 kr. |
Um bókina
Á sóðalegum stöðum í Afríku blæðir ótal ungum stúlkum út vegna ólöglegra fóstureyðinga – mörgum eftir nauðgun. Þrjár konur í Svíþjóð hafa tekið til sinna ráða og vinna ötult hjálparstarf, bæði heima og í Afríku. Ein þeirra, Ellen Elg, söguhetja þessarar bókar, lendir hvað eftir annað í lífshættu í viðleitni við að bæta ástandið á staðnum. Ólíklegustu aðilar leggja stein í götu hennar og atburðarásin tekur óvænta stefnu.
Karin Alfredsson hefur sjálf unnið í Afríku sem blaðamaður og þekkir aðstæður frá fyrstu hendi. Hér segir hún frá kvennakúgun og baráttu upp á líf og dauða við skilyrði sem fáir Vesturlandabúar geta ímyndað sér. Í þessari spennandi skáldsögu er dauðinn nálægur við hvert fótmál og blóðið rennur.