Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Látra-Björg
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 128 | 3.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 128 | 3.990 kr. |
Um bókina
Látra-Björg (1716-1784), kraftaskáld, sjómaður, flökkukona – goðsögn í lifanda lífi og ráðgáta eftir að hún lést á vergangi í Móðuharðindunum. Samtíðarmenn hennar óttuðust hana. Með kvæðum sínum var hún sögð geta flutt til fjöll, laðað að sér fisk og deytt menn eða fært þeim gæfu.
Í þessari bók eru saman komin öll helstu kvæði Látra-Bjargar og um leið skýringar Helga Jónssonar frá Þverá í Dalsmynni og samantekt hans á æviferli hennar, en Helgi var einhver dularfyllsti rithöfundur Íslandssögunnar.
Í sérstökum viðauka er svo að finna Látrabréfið sem líkur eru á að sé eini varðveitti prósatextinn eftir Látra-Björgu, einhver kynngimagnaðasti orðagaldur sem um getur, sagður hafa fundist á skemmuvegg á Látrum árið 1740.