Konan í búrinu: Deild Q #1
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2012 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2012 | 490 kr. |
Um bókina
Ung dönsk þingkona hverfur sporlaust af ferju á leið til Þýskalands. Frami hennar hefur verið hraður enda er hún bæði greind og metnaðargjörn. Fjölmiðlar gera sér mikinn mat úr efninu: Framdi hún sjálfsmorð? Var hún myrt? Var henni rænt? Lenti hún í slysi? Vildi hún láta sig hverfa? Lögreglan skipuleggur víðtæka leit – en án árangurs. Það er eins og konan hafi gufað upp af yfirborði jarðar.
Það er ekki fyrr en einþykki og sérsinna rannsóknarlögreglumaðurinn Carl Mørk er settur yfir Deild Q,nýstofnaða sérdeild innan dönsku lögreglunnar, sem skriður kemst á málið. Þá er liðið á elleftu stundu.
Hilmar Hilmarsson þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 13 klukkustundir og 41 mínútur að lengd. Davíð Guðbrandsson les.
4 umsagnir um Konan í búrinu: Deild Q #1
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… þetta er afar spennandi og skemmtileg bók.“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Fínn reyfari, einn af þeim sem maður á að taka með sér í fríið … mjög vel gert.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Fléttan í bókinni er býsna haganlega samin, sagan er frekar stutt og skemmtileg. Höfundurinn passar sig á því, að halda ýmsum helstu klisjum glæpasagna af þessu tagi til haga en snýr jafnframt nokkuð haganlega út úr þeim, eða upp á þær … Þessi glæpasaga er fyllilega fjögurra stjarna virði.“
Guðmundur Sv. Hermannsson / Morgunblaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„[Adler-Olsen] er algjörlega prófessjónal maður, hann kann þetta allt … mjög hugmyndaríkur.“
Páll Baldvin Baldvinsson / Kiljan