Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Kindasögur II
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 128 | 3.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 128 | 3.690 kr. |
Um bókina
Sauðkindin er fíngerð og viðkvæm sagði í einni af útvarpstilkynningum Sauðfjárverndarinnar seint á síðustu öld.
Í öðru bindi Kindasagna eru meðal annars rifjuð upp tildrög þessara tilkynninga, sagt frá afdrifum kinda í eldgosum og sauðfjárhaldi í höfuðborginni, vikið að framliðnum kindum, forystukindum, stökkrollum og karakúlfé, auk kinda í kvæðum íslenskra skálda.
Kindasögur eru sérstök grein íslenskrar sagnaskemmtunar sem á sér langa sögu en lifir enn góðu lífi – rétt eins og sauðkindin sjálf.
Höfundar eru áhugamenn um sögur og sauðfé.