Í öðru landi – saga úr lífinu
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2007 | 249 | 2.690 kr. | ||
Geisladiskur | 2007 | Mp3 | 1.590 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 490 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2007 | 249 | 2.690 kr. | ||
Geisladiskur | 2007 | Mp3 | 1.590 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 490 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Í öðru landi – Saga úr lífinu (2007) eftir Eddu Andrésdóttur er ljúfsár og lágstemmd frásögn dóttur sem horfir á eftir föður sínum hverfa inn í óminnisland Alzheimers-sjúkdómsins, þaðan sem hann átti ekki afturkvæmt. Hann lést innan við ári eftir að veikindanna varð fyrst vart.
Dóttirin fylgist vanmáttug með þegar faðir hennar missir smátt og smátt tengslin við tilveruna og tími hans fjarar út og um leið finnst henni hún sjálf stödd í öðru landi. Henni verður hugsað til liðinna tíma og hún fer að rifja upp sögu föður síns og fjölskyldunnar, drauma og veruleika íslenskrar alþýðufjölskyldu á seinni hluta síðustu aldar, tíðaranda og minningarbrot frá liðinni tíð. Lítil atvik vekja upp ljúfan ilm minninganna og þrátt fyrir tregann í frásögninni er húmorinn aldrei langt undan.
Í öðru landi er skrifuð frá hjartanu, bók um erfiða reynslu sem jafnframt vekur alla til umhugsunar um tímann og ellina, tilfinningar og samkennd. Við vitum ekki hvað bíður okkar og kannski verður ellin ekki eins og við höfðum hugsað okkur; þess vegna skiptir máli að nýta þær stundir sem við höfum saman.
Edda Andrésdóttir er kunn fjölmiðla- og sjónvarpskona sem áður hefur sent frá sér tvær viðtalsbækur, Á Gljúfrasteini, bók um Auði Laxness, og Auður Eir: Sólin kemur alltaf upp á ný. Hér slær hún nýjan streng og skrifar afar persónulega bók sem byggist alfarið á hennar eigin reynslu.
ATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókin er til á geisladiski (CD eða Mp3) sem afhendist í pósti eða úr verslun en einnig er hægt að fá hljóðbók sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra (Hljóðbók – App). Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er um 6 klukkustundir að lengd. Höfundur les.
5 umsagnir um Í öðru landi – saga úr lífinu
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Áhrifarík saga um tímann og minnisveiki … góð gjöf sem Edda á þökk fyrir að skrifa … áhrifarík og persónuleg bók um mikilvægt málefni … opnar margbrotnar litlar gáttir inn í heim bernskuminninga sinna og sýn inn í lífsferð foreldra …“
Friðbjörg Ingimarsdóttir / Morgunblaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Fallega skrifuð bók sem skilur eftir ljúfa tilfinningu. Bók sem kemur á óvart.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Ísafold
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Ekki bara að hún er einstaklega vel skrifuð, með góðum lýsingum á tíðarandanum og ekki síst sjúkdómsferli föður … heldur get ég nýtt hana á svo margan hátt eins og í kennslu, fyrirlestrum og stuðningshópum fyrir aðstandendur … hrifin af ljóði Borges. Maður ætti að lesa það á hverjum morgni þegar maður vaknar!“
Hanna Lára Steinsson, félagsráðgjafi og framkvæmdastjóri Bjarmalundar – ráðgjafarstofu um Alzheimer og öldrun
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Það er ofboðslegur vandi að skrifa um svona djúpar tilfinningar þannig að öðru fólki komi það við. En Eddu tekst það … Þörf og ákaflega vel skrifuð bók um föðurmissi og fortíðarleit.“
Gerður Kristný / Mannamál
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… þó þetta sé bók um erfitt málefni og oft á tíðum þungbært – þá er þetta ljúf lesning … manneskjuleg bók.“
Sigmar Guðmundsson / Kastljós