Í fylgd með fullorðnum
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2005 | 213 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2005 | 213 | 990 kr. |
Um bókina
Ég dáist að fólki sem man hluti sem geta komið að gagni. Fólk sem romsar upp úr sér staðreyndum. Serstaklega öfunda ég þó fólk sem man eftir sjálfu sér. Man hvað það hugsaði þegar það var þriggja ára. Hvenær það fann ástina í fyrsta sinn. Fólk sem tekur iðulega þannig til orða: „Ég man það eins og það hefði gerst í gær?“. Eitthvað sem gerðist fyrir löngu. Það er ekki margt sem ég man með þeim hætti. Meira svona eins og það hafi gerst í fyrradag.
Eða daginn þar áður.
Af hverju er ég að hugsa um þetta núna? Ég hef ekki leitt hugann að þessu árum saman. Enda vil ég ekki hugsa um það. Langar alls ekki að muna það.
En þegar öllu er á botninn hvolft, hvað man maður svo sem?
Í fylgd með fullorðnum er fyrsta skáldsaga Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur leikkonu, byggð á bernskuminningum hennar. Hún vakti verulega athygli fyrir skemmtilegan stíl og frásagnargáfu.
6 umsagnir um Í fylgd með fullorðnum
Elín Pálsdóttir –
„Bókin er mjög vel læsileg, eiginlega ótrúlega gott byrjendaverk.“
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir / RÚV
Elín Pálsdóttir –
„Engum blöðum um það að fletta að íslenskri bókmenntaflóru hefur bæst höfundur sem hefur mikið fram að færa og kann galdurinn við að hrífa lesandann með sér, ýta við honum og heilla hann upp úr skónum.“
Friðrika Benónýs / Morgunblaðið
Elín Pálsdóttir –
„Það er kraftur í þessari frásögn, sterk löngun til að segja frá sem smitar lesandann og heldur honum við efnið, dirfska til að takast á við erfiða hluti.“
Halldór Guðmundsson / Fréttablaðið
Elín Pálsdóttir –
„Steinunn skrifar fallegan texta … Bernskuminningar hennar eru furðu litríkar … með heppnari byrjendum á síðari tímum.“
Silja Aðalsteinsdóttir / Tímarit Máls og menningar
Elín Pálsdóttir –
„Blússandi húmor…fín saga…langt síðan ég hef lesið jafn fallega frásögn af samskiptum mæðgna. Steinunn Ólína má vera stolt af frumraun sinni.“
Sigríður Albertsdóttir / DV
Elín Pálsdóttir –
„Steinunn stígur fram sem sterkur rithöfundur með tæran texta og einstaklega skemmtilegan frásagnarmáta, húmor og gáfur. Ég er stórhrifin.“
Sirrý Arnardóttir / Fólk