Hringiðan
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 342 | 90 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 342 | 90 kr. |
Um bókina
Landegode fyrir utan Bodø: Óhuggnalegt öskur vekur athygli tveggja drengja sem leika sér í klöppunum. Í sjávarmálinu finna þeir karlmann – hlekkjaðan með hendurnar ofan í ísköldum sjónum.
Við strönd Bergland, um það bil 300 kílómetra fyrir norðan Bodø flýtur postulínsdúkka á land. Gömlu hjónin sem finna hana telja hana vera illan fyrirboða, en lögregluþjóninn Niklas Hultin, sem er nýfluttur á svæðið, telur fund dúkkunnar ómerkilegt mál miðað við það sem hann hefur kynnst í starfi sínu í höfuðborginni. Þegar á líður gerast óhugnalegir atburðir, og einn daginn finnst meðvitundarlaus kona á ströndinni klædd í svipaðan kjól og dúkkan…
Fleiri sorgarsögur fléttast meistaralega saman í þessari æsispennandi spennusögu sem gerist í Norður Noregi.
Frode Granhus er norskur rithöfundur og býr í Lofoten í Norður Noregi. Sögusvið bóka hans er Norður Noregur. Hringiðan er fyrsta bókin um Rino Carlsen lögreglumann í Bodø og samstarfsfélaga hans. Bækur Frode Granhus hafa fengið góðar umsagnir gagnrýnenda og lesenda og er hann nú meðal vinsælustu glæpasagnahöfunda Noregs. Bækur hans eru nú gefnar út í allmörgum löndum.
Hringiðan er fyrsta bók Frode Granhus sem gefin er út í íslenskri þýðingu.
2 umsagnir um Hringiðan
Elín Pálsdóttir –
„Hefði Jussi Adler – Olsen fæðst í Noregi, væri nafn hans Frode Granhus! Undirritaður getur ekki beðið eftir næstu bók því þessi lestur kallar á fleiri bækur.“
– Eric Diepvens, Crimezone
Elín Pálsdóttir –
„Ein af mest spennandi bókum haustsins“ – Dagbladet