Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 270 | 5.990 kr. |
Um bókina
Ólafur B. Schram hefur áratugum saman verið leiðsögumaður erlendra ferðamanna auk þess sem hann hefur ferðast um landið þvert og endilangt ríðandi eða akandi, ýmist einn eða í góðra vina hópi.
Í þessari bók eru einkum frásögur af þessum ferðum, gamansögur og sögur af einkennilegu fólki, af svaðilförum og ýmsum skondnum uppákomum. Einnig má í bókinni finna frásagnir úr æsku hans, ekki síst frá veru hans í Öræfasveitinni, frá fólkinu sem þar bjó, tíðaranda og ýmsum minnisstæðum atvikum.
Það er óhætt að segja að Ólafur fari á kostum í þessari bók sem iðulega kitlar hláturtaugar lesandans enda þótt oft megi skynja alvarlegri undirtón.