Heiðra skal ég dætur mínar – frásögn föður um morð á eigin barni

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 90 kr.

Heiðra skal ég dætur mínar – frásögn föður um morð á eigin barni

90 kr.

Heiðra skal ég dætur mínar - frásögn föður um morð á eigin barni
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 90 kr.

Um bókina

Heiðra skal ég dætur mínar eftir Lene Wold hefur fengið mikið umtal í Noregi og Danmörku og fjallar um gerendur og fórnarlömb heiðursmorða í Jórdaníu.

Lene Wold hefur varið miklum tíma í Jórdaníu undanafarin þrjú ár með föður sem drap móður sína og aðra af tveimur dætrum sínum til að endurheimta heiður fjölskyldunnar. Wold hefur rætt við dótturina, sem lifði af tilræðið og sat í fangelsi í mörg ár á eftir til að hljóta vernd fyrir eigin fjölskyldu. Höfundurinn hefur heimsótt fangelsi og moskur, lesið blaðagreinar og dómsskjöl, og heimsótt ímana, þorpsleiðtoga og morðingja.

Með hjálp óvenjulegra heimilda lýsir hún hlið á heiðursmorðum sem hingað til hefur verið óþekkt. Við fáum söguna frá sjónarmiði gerandans og Wold sýnir fram á að heiðursmorð snúast ekki um íslam, heldur um hefðir og löggjöf sem er hægt að takast á við og breyta. Heiðra skal ég dætur mínar er sláandi frásögn um hvað það er sem fær föður til að setja gildi samfélagsins ofar lífi eigin barna. Þetta er sérstök og harmþrungin saga sem lætur lesandann ekki ósnortinn.

Lene Wold er blaðamaður og stjórnmálafræðingur. Hún hefur starfað fyrir dagblaðið The Independent og The Centre for Investigative Journalism í Englandi, og hefur búið og starfað í Miðausturlöndum. Hún er með meistaragráðu í fjölmiðlafræði frá Goldsmiths University of London, með bakkalárgráðu í þróunarfræðum frá Høgskolen í Osló, og hefur lært arabísku í Líbanon og Jórdaníu.

Tengdar bækur

Sturlunga geðlæknisins
3.490 kr.5.090 kr.
Líkami okkar, þeirra vígvöllur
3.890 kr.
Handleiðsla: til eflingar í starfi
5.390 kr.
Um tímann og vatnið
990 kr.4.990 kr.
Þungir skrifborðsþankar
1.690 kr.
Mið-Austurlönd - fortíð, nútíð og framtíð
990 kr.3.890 kr.
Afbrot og íslenskt samfélag
4.190 kr.
Stríðið gegn Sýrlandi
3.990 kr.
Auðnustjarnan
2.590 kr.

INNskráning

Nýskráning