Haf tímans
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | - | 1.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | - | 1.690 kr. |
Um bókina
Í byrjun 21. aldar leggur fjögurra manna áhöfn Ares af stað í fyrstu mönnuðu geimferðina til Mars. Á rauða hnettinum tekur við þeim óþekktur heimur, fullur af furðum og óvæntum uppgötvunum, ásamt Marsbúanum Tweel sem leiðbeinir söguhetjunum í gegnum hættur plánetunnar.
Hér birtast tvær smásögur eftir Stanley G. Weinbaum, sú fyrri, Ævintýraför til Mars, er talin til meistaraverka í vísindaskáldskap en sú síðari, Draumadalurinn, sem er hluti sama verks hefur því miður fallið í gleymskunnar dá. Hér sameinaðar á ný í íslenskri þýðingu.
Stanley G. Weinbaum lést langt fyrir aldur fram (1902-1935) en smásögur hans lifa góðu lífi enn þann dag í dag. Með Tweel svaraði Weinbaum frægri áskorun John. W. Campell og skapaði fyrstu vitibornu geimveru bókmenntanna sem hugsaði eins og hún sjálf.