Guð og gróðurhúsaáhrif – kristin siðfræði á tímum loftslagsbreytinga
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 164 | 4.990 kr. |
Guð og gróðurhúsaáhrif – kristin siðfræði á tímum loftslagsbreytinga
4.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 164 | 4.990 kr. |
Um bókina
Kröftug umræða um umhverfið, náttúruna og nú síðast hnattræna hlýnun af mannavöldum fer nú fram innan kristinnar guðfræði eins og í öðrum fræðigreinum. Guðfræðingar hafa löngum tekið alvarlega þá gagnrýni að kristni sé einstakega mannhverf.
Í umræðu um siðferðileg vandamál samtímans vilja margir þeirra leggja sitt af mörkum til þess að koma í veg fyrir að þeir spádómar rætist að vestræn iðnvædd samfélög eigi eftir að valda óafturkræfum skaða á lífríkinu.
Í þessari bók er tekist á við spurningar sem lúta að kristnum áhrifum og hugmyndum um náttúruna í sögu jafnt sem samtíð:
Hver er staða náttúrunnar í Biblíunni og kristinni hefð? Hvernig túlka guðfræðingar í samtímanum þá hugmynd að maðurinn sé kóróna sköpunarverksins? Hvaða leiðsögn geta guðfræðingar veitt til að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga með réttlátum og ábyrgum hætti? Og hvað merkir það að vinna að réttlæti í loftslagsmálum í guðfræðilegu samhengi.