Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Fólkið í blokkinni
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2008 | 128 | 2.590 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2008 | 128 | 2.590 kr. |
Um bókina
Vigga er 11 ára og býr ásamt fjölskyldu sinni á níundu hæð í blokk í Hólunum. Vigga hefur frá frá ýmsu að segja. enda er lífið í blokkinni hreint ótrúlega fjölbreytilegt. Þar býr margt skondið og skemmtilegt fólk, til aðmynda Robbi húsvörður sem trompast ef hann sér hund, Malla norn sem getur galdrað graftarbólur á nefið á leiðinlegum strákum, Loftur Loftsson sem á hundinn Loft, tvíburarnir Ari og Bjarni sem enginn þekkir í sundur, þunglyndi leikarinn og síðast en ekki síst hann Óli, bróðir Viggu, sem á talandi páfagauk.
Sögurnar af fólkinu í blokkinni eru sprenghlægilegar en þó um leið svo raunsannar að allir sem einhverntíma hafa búið í blokk hrópa: Einmitt svona er þetta!