Fléttur IV – margar myndir Ömmu: konur og mótun íslensks samfélags á 20. öld
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2017 | 316 | 5.190 kr. |
Fléttur IV – margar myndir Ömmu: konur og mótun íslensks samfélags á 20. öld
5.190 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2017 | 316 | 5.190 kr. |
Um bókina
Fjórða hefti ritraðar RIKK er tileinkað ömmum og langömmum.
Í greinunum eru sagðar sögur kvenna sem lifðu þann tíma þegar nútíminn hóf innreið sína á Íslandi og ljósi varpað á hugmyndaheim þeirra, stöðu og aðstæður og framlag til þróunar nútímasamfélags á Íslandi.
Fræðimenn af óíkum sviðum, s.s. sagnfræði, guðfræði, félagsfræði, stjórnmálafræði og bókmenntafræði, setja lífshlaup formæðra sinna í samhengi við samfélagsgerðina sem, hvað sem borgaralegum réttindum leið, takmarkaði möguleika þeirra til þáttöku í opinberu lífi og um leið til sjálfstæðis og frelsis.
Jafnframt er þáttur þeirra í að endurmóta ríkjandi hugmyndir um kvenleikann og samfélagslegt hlutverk sitt metinn og spurt hvaða tækifæri konur höfðu til þess að hafa áhrif í samfélaginu, bæði með starfi sínu inn á við, í þágu heimilis, en ekki síður út á við, til dæmis í gegnum félagasamtök og kvenfélög sem voru í hverri sveit.
Greinarnar draga upp fjölbreytta mynd af lífi kvenna á Íslandi um aldamótin 1900 og fram á miðja 20. öld með því að tefla saman kenningarlegri nálgun og persónulegri frásögn.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ritar formála að bókinni.