Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Fjölskyldulíf á jörðinni
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2020 | 52 | 3.890 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2020 | 52 | 3.890 kr. |
Um bókina
í fréttinni stendur að margar tegundir hverfi
áður en vísindamenn uppgötvi þær
það er sem sagt til líf í meinum
utan við mannkynssöguna
ég ýti á takkann á hliðinni á símanum
takkann sem drekkir öllum vondum fréttum
í speglandi myrkri
út undan mér heyri ég dóttur mína þjóta af stað
niður rennibrautina
hún skrækir af fögnuði
fullviss um að eitthvað stórkostlegt sé í vændum
eftir hálft ár mun hún eignast lítinn bróður
Dagur Hjartarson er fæddur á Fáskrúðsfirði árið 1986. Hann fékk Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2012 fyrir sína fyrstu ljóðabók og Ljóðstaf Jóns úr Vör árið 2016. Þá var Dagur tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins árið 2017. Fjölskyldulíf á jörðinni er áttunda bók hans.
1 umsögn um Fjölskyldulíf á jörðinni
embla –
„Mér finnst hann [Dagur] ná svo ótrúlega fallega utan um þetta kyrra, stillta, fallega í tilverunni.“
Sunna Dís / Kiljan