Fiskar
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Geisladiskur | 2017 | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Geisladiskur | 2017 | 2.990 kr. |
Um bókina
Fiskar nefnist þriðja sólóplata Jóns Ólafssonar. Fyrri tvær plöturnar komu út árin 2004 og 2007. Lög og textar eru eftir Jón að undanskildum tveimur textum eftir Stefán Mána og Hallgrím Helgason.
Auk Jóns leika á plötunni þau Bassi Ólafsson (trommur), Andri Ólafsson (bassi), Ingi Skúlason (bassi), Róbert Örn Hjálmtýsson (bassi), Guðmundur Pétursson (gítar), Stefán Hjörleifsson (gítar) og sellóleikarinn Bryndís Halla Gylfadóttir.
Upptökur fóru fram í hljóðveri Jóns, Eyranu, en hljóðblöndun hjá Tónverki í Hveragerði og sat þar við stjórnvölinn Bassi Ólafsson. Mandy Parnell masteraði hljómplötuna.
Ef lýsa ætti Fiskum mætti segja að einfaldleikinn sé í fyrirrúmi, jafnt í tón-, textasmíðum og útsetningum. Textarnir fjalla um þrá, langanir, líf, dauða, aðskilnað, samlíðan o.fl. Jón Ólafsson hefur verið afkastamikill í íslensku tónlistarlífi um langa hríð og er meðlimur í hljómsveitinni Nýdönsk.