Fimmaurabrandarar
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 80 | 890 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 80 | 890 kr. |
Um bókina
Fimmaurabrandarafjelagið hefur á undanförunm árum verið mjög atkvæðamikið og þaðan hafa komið alveg stórkostlegir brandarar, iðulega frumsamdir og oft í orðaleiksformi.
Nokkur dæmi:
„Af hverju eru Reynir og Danni orðnir svona litlir?“
„Þeir skruppu saman í bíó.“
*
Ef fjórir af hverjum fimm þjást af niðurgangi þá hlýtur sá fimmti að njóta hans.
*
Steig á vigtina áðan og sá að ég þarf nauðsynlega að láta klippa mig.
*
Eruð þið ekk að grínast með húsnæðisverðið nú á dögum, meira að segja húsflugur eru farnar að halda sig utandyra!
*
Hvernig veiðir maður flugfisk?
Nú, í loftnet.
En á hvað veiðir maður saltfisk?
Á saltstöng.
*
„Þetta er frábær sakamálasaga, það eru sjö morð í henni!“
„Gott, mér líkar við líflegar bækur!“
*
Ég fór í mjög skemmtilega ferð til Gdansk í fyrra. Nú er að velta fyrir mér hvort það gæti ekki verið gaman skreppa til Gnorsk eða Gsvensk í ár.