Farþeginn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2006 | 238 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2006 | 238 | 990 kr. |
Um bókina
Þegar Arnar Sigurðsson leigubílstjóri tekur upp Sigurbjörn Hjálmarsson forstjóra í miðbæ Reykjavíkur á ísköldum nýársdegi hefst undarlegt ferðalag sem er þó ekki án fyrirheita. Báðir hyggja þeir á betra líf á nýju ári, hvor með sínum hætti. Hvorugan órar fyrir hvernig ferðin endar. Hvorugur gerir sér grein fyrir hvert fargjaldið verður.
Það sem í upphafi sýnist léttgeggjuð og tilviljunarkennd skemmtiferð reynist þegar upp er staðið hatrammt uppgjör við fortíð og nútíð þar sem einskis er látið ófreistað í baráttu fyrir nýrri og betri framtíð. Þá hefst annað ferðalag um ókortlagða og óhugnanlega refilstigu mannlegrar breytni og breyskleika.
„En getur einhver breytt lífi sínu?
Byrjað það aftur?
Gefið spilin upp á nýtt?“
Farþeginn er skemmtileg og hraðfleyg spennusaga sem sleppir ekki hendi af lesanda fyrr en hún er öll. Farþeginn er önnur spennusagan sem Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson skrifa saman. Sú fyrri var Í upphafi var morðið sem hlaut frábærar viðtökur. Síðasta spennusaga Árna Þórarinssonar, Tími nornarinnar, kom út 2005 og náði metsölu og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
4 umsagnir um Farþeginn
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Áhugaverð morðgáta … skemmtilega spunnin glæpasaga.“
Þórarinn Þórarinsson / Fréttablaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Spennandi glæpasaga með hraðri atburðarás … tekur fljótt flugið og heldur lesanda föstum tökum … svo spennandi að flestir hljóta að lesa hana í einum rykk.“
Ingvi Þór Kormáksson / bokmenntir.is
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Spennandi og snjöll sakamálasaga … ein af þeim sögum sem erfitt er að leggja frá sér fyrr en búið er að lesa hana til enda.“
Steingerður Steinarsdóttir / Tímaritið H
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Tær snilld frá byrjun til enda … góður krimmi með flottri fléttu.“
Kolbrún Ósk Skaftadóttir / Eymundsson