Engillinn í eyjunni
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 186 | 90 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 186 | 90 kr. |
Um bókina
Engillinn í eyjunni er eftir norska listamanninn Levi Henriksen. Hann er fjöllistamaður og semur lög og ljóð auk bóka. Það er full ástæða til að mæla með þessari skemmtilegu sögu sem hefur fengið mjög góða dóma og góðar viðtökur erlendra gagnrýnenda og lesenda.
Hvernig er það fyrir Astrid Baros að vera lítil stelpa sem þarf að búa eina viku í senn hjá mömmu og aðra viku hjá pabba? Þar að auki er hún alls ekki sátt við stjúpforeldrana, finnst þau bæði vera frekar þreytandi. Hún hefur ekki áhuga á að verða „stór” og stendur þess vegna á höfði í tíu mínútur á dag, til að stækka ekki.
Astrid grípur til óvenjulegra aðgerða til að styrkja tengsl foreldranna og að þau sameinist á ný sem fjölskylda, en það hefur talsvert örlagaríkar afleiðingar í för með sér. Það sem hún þarfnast er vírklippur, þurrmatur og eyðieyja. Og mjög mikil heppni. Því miður skortir hana það síðastnefnda.
Þýðandi: Sigurður Helgason
2 umsagnir um Engillinn í eyjunni
Elín Pálsdóttir –
„Besta barnaspennubók ársins.” – Sandefjords Blad
Elín Pálsdóttir –
„Fyrsta flokks spennubók fyrir börn.” – Fædrelandsvennen