Eldum björn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 460 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 460 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Sumarið 1852 varð örlagaríkt í þorpinu Kengis, nyrst í Svíþjóð. Samíski pilturinn Jussi gengur um skóginn með prestinum, húsbónda sínum, sem les náttúruna eins og opna bók og hefur alið Jussa upp og miðlað honum af þekkingu sinni. Smalastúlkan Hilda er horfin og talið er að grimmur björn hafi grandað henni. Þegar lík Hildu finnst illa leikið sannfæra verksummerki prestinn um að enginn ferfætlingur hafi orðið henni að bana … Og svo fjölgar fórnarlömbunum, hjátrú og fordómar ná yfirhöndinni og andrúmsloftið verður sífellt myrkara.
Mikael Niemi sló í gegn með skáldsögunni Rokkað í Vittula sem kom út víða um heim og naut mikilla vinsælda. Hér leitar hann á vit sögunnar, skrifar um grasafræðinginn og trúarleiðtogann Lars Levi Læstadius og gerir hann að eins konar Sherlock Holmes. Eldum björn er einstaklega heillandi saga sem hefur fengið frábærar viðtökur og kemur nú út á íslensku í meistaralegri þýðingu Ísaks Harðarsonar.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 14 klukkustundir og 26 mínútur að lengd. Arnar Jónsson les.
4 umsagnir um Eldum björn
embla –
„Þó að vissulega sé um reifara að ræða ættu frekari aðdáendur annarra bókmenntategunda ekki endilega að láta Eldum björn fram hjá sér fara.“
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir / Morgunblaðið
embla –
„Atburðarásin er hröð, ofbeldið óhugnanlegt og spennan magnast sífellt eftir því sem líður á bókina en þó sitja ekki síst eftir vangaveltur Jussa og prestsins um stærra samhengi hlutanna.“
Maríanna Clara Lúthersdóttir / RÚV
gudnord –
„… óvænt og ofboðslega góð.“
Berlingske
gudnord –
Politiken