Ekki gleyma mér – minningasaga
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2017 | 283 | 3.390 kr. | ||
Geisladiskur | 2017 | Mp3 | 99 kr. | ||
Kilja | 2018 | 283 | 2.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2017 | 283 | 3.390 kr. | ||
Geisladiskur | 2017 | Mp3 | 99 kr. | ||
Kilja | 2018 | 283 | 2.190 kr. |
Um bókina
Hann hafði verið maðurinn í lífi mínu, með honum átti ég fallegustu og æðisgengnustu daga og nætur ævinnar á dögum undirliggjandi ótta og einræðisstjórnar Þýska alþýðulýðveldisins. Af hverju hvarf hann fyrirvaralaust úr lífi mínu? Af hverju heyrðist ekkert í honum eftir að múrinn féll? Hafði hann eitthvað að fela?
Kristín Jóhannsdóttir hélt til náms austur fyrir járntjald árið 1987. Sú vist átti eftir að marka hana fyrir lífstíð. Í tvo áratugi sat hún á sér en gat svo ekki meir. Hafði maðurinn sem hún elskaði bara verið ómerkilegur Stasí-njósnari? Hvað með aðra vini sem hún eignaðist á þessum sögulegu tímum?
Kristín Jóhannsdóttir er forstöðumaður Eldheima í Vestmannaeyjum. Hún var um langt árabil fréttaritari Ríkisútvarpsins í Berlín. Ekki gleyma mér er áhrifamikil minningasaga þar sem hún gerir upp heitar nætur í köldu stríði í einræðisríki á fallanda fæti. Þetta er hrífandi bók sem dregur upp áleitna mynd af veröld sem var og lætur engan ósnortinn.
ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.