Einu sinni var dramadrottning
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2022 | 990 kr. | |||
Innbundin | 2007 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2022 | 990 kr. | |||
Innbundin | 2007 | 990 kr. |
Um bókina
Þegar Embla fréttir að kærastinn hennar ætli að segja henni upp ákveður hún að grípa til sinna ráða. Hún stefnir ótrauð að því að ævintýrið sem líf hennar er fái hamingjuríkan endi þrátt fyrir tímabundið mótlæti og því upphefst leit að nýjum prinsi. En því miður lýtur líf Emblu ekki sömu lögmálum og ævintýri. Froskar breytast ekki í prinsa heldur breytast prinsar í froska. Hvorki vinalegir dvergar né hjálplegar álfkonur verða á vegi hennar, aðeins forhertir kapítalistar og gallharðir kommúnistar. Í stað eitraðra epla eru talandi plómur, í stað illkvittinna stjúpmæðra birtast naktar stjúpmæður og í stað fallegra ballkjóla koma við sögu allt of þröngar gallabuxur og herðapúðar. Eyðilegðu ekki daginn með því að lesa um brostnar vonir, niðurlægingu, stappaðan fisk, valdarán og þrútnar bólur.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 5 klukkustundir og 44 mínútur að lengd. Sigríður Eyrún Friðriksdóttir les.