Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Eins og steinn sem hafið fágar
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2003 | 405 | 990 kr. | ||
Kilja | 2003 | 405 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2003 | 405 | 990 kr. | ||
Kilja | 2003 | 405 | 990 kr. |
Um bókina
Í þessari töfrandi bók heldur Guðbergur Bergsson áfram sögunni sem hófst í verðlaunabókinni Faðir, og móðir og dulmagn bernskunnar, og leitar uppi líf sem hvergi er lengur að finna nema í hugskotinu. Sagan um steininn sem hafið fágar er óður um lítið timburhús við sjó, óður um fátækt og óupplýst fólk sem býr yfir miklu viti og djúpum tilfinningum.
Sagan lofsyngur engan né vorkennir neinum. Hún fylgir ekki framvindu þess tíma sem menn trúa að sé hinn eini rétti, heldur hrærist í sínum eigin tíma og lýtur lögmálum hugans og skáldskaparins. Á áhrifamikinn og hispurslausan hátt yrkir Guðbergur um þann heim sem mótaði vitsmuni hans og tilfinningar – og skáldskap.
Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 1998.