Ég á teppi í þúsund litum
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2015 | 255 | 3.390 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2015 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2015 | 255 | 3.390 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2015 | 490 kr. |
Um bókina
Hún á erfitt með að sýna væntumþykju en getur töfrað fram mikilfenglegar máltíðir úr tómu búri. Hún er góðum gáfum gædd en hefur ekki fengið að njóta hæfileika sinna. Hún er einstæð móðir og stýrir stórri vél í plastverksmiðju. Hún er Birte, móðir höfundarins Anne B. Ragde.
Bókin birtir í senn skemmtilega og þversagnakennda mynd af duglegri og þrjóskri konu sem lést eftir erfið veikindi árið 2012. Af innileika og kímni segir Ragde frá uppvaxtarárum sínum í Þrándheimi fyrir og eftir skilnað foreldranna og lífi móður sinnar eftir að dóttirin flutti að heiman. Síðustu mánuði ævinnar leið Birte miklar þjáningar á undirmönnuðu hjúkrunarheimili og láta lýsingarnar á því skeiði engan ósnortinn.
Ég á teppi í þúsund litum er grípandi saga um lífsþrótt og seiglu, um skort á umhyggju, um þakklæti og óræða þrá – og um það hvernig komast skal hjá því að kalkúnninn verði of þurr.
Silja Aðalsteinsdóttir þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 56 mínútur að lengd. Silja Aðalsteinsdóttir les.
2 umsagnir um Ég á teppi í þúsund litum
Elín Pálsdóttir –
„Ragde teiknar mynd af sinni þversagnakenndu og litríku móður með ástúð, húmor og nærgætni … Þó að efnið sé alvarlegt er þetta gríðarlega skemmtileg saga …“
Aftenposten
Elín Pálsdóttir –
„Hvílík bók! … Sagan af móður Ragde er stundum harkaleg en þó barmafull af viðkvæmni og hlýju …“
VG