Draugagangur á Skuggaskeri: saga #2
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2014 | 203 | 3.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2014 | 203 | 3.990 kr. |
Um bókina
Merkin sem berast frá njósnahnettinum hafa komið honum á sporið. Ánægjuglott færist yfir andlit hans. Hann hefur nefnilega uppgötvað lítið og skrítið sker sem lúrir úti í hafi og lumar á dýrmæti sem vert er að rannsaka betur.
Strokubörnin eru fundin! En þau neita að snúa heim fyrr en fullorðna fólkið hefur lagfært allt sem eyðilagðist í stríðinu heima í Fagradal. Sumarið er framundan og Skuggasker heimsins besti staður. Eða hvað? Getur verið að hér sé eitthvað hættulegt á sveimi?
Draugagangur á Skuggaskeri er ríkulega myndskreytt saga fyrir lesendur frá níu ára aldri og framhald sögunnar Strokubörn á Skuggaskeri sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Sigrún Eldjárn er einn af virtustu barnabókahöfundum landsins og hafa bækur hennar notið gríðarlegra vinsælda um áratuga skeið. Hún bætir hér enn einni frábærri bók í fjársjóðskistu íslenskra barna.
3 umsagnir um Draugagangur á Skuggaskeri: saga #2
Bjarni Guðmarsson –
„Þræðirnir í sögunni eru listalega vel fléttaðir … Fróðleik er komið á framfæri í gegnum börnin þegar þau lesa og læra um náttúruna enda þurfa þau að fræðast um margt til að geta bjargað sér … Sagan er spennandi og skilaboðin eru sígild: verðum góð hvert við annað og við umhverfi okkar og sýnum tillitsemi!“
María Bjarkadóttir / bokmenntir.is
Bjarni Guðmarsson –
„Atburðarrásin í bókinni er æsileg og ævintýraleg í senn, heilmikið að gerast og flækjan verður sífellt meiri sem heldur manni við efnið og gott betur … það verður erfitt að bíða í ár eftir næstu sögu af krökkunum á Skuggaskeri.“
Árni Matthíasson / Morgunblaðið
Bjarni Guðmarsson –
„Fléttan er vel heppnuð og frásögnin stútfull af skemmtilegum persónum og fyndnum atvikum. Svo er hún líka spennandi. Persónurnar eru vel skapaðar og höfundur meðvitaður um að enginn er bara vondur eða bara góður. Höfundur skrifar söguna af virðingu fyrir lesendum sínum, börnunum. Virkilega vönduð og skemmtileg bók, sem bæði börn og fullorðnir ættu að hafa gaman af. Litmyndir og litaður texti lífga upp á lestrarupplifunina.“
Halla Þórlaug Óskarsdóttir / Fréttablaðið