Dóttir Mýrarkóngsins
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 318 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 318 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Um bókina
Helena Pelletier á sér leyndarmál: Faðir hennar, Mýrarkóngurinn, situr í lífstíðarfangelsi fyrir morð, nauðgun og mannrán. Hann rændi móður hennar þegar hún var unglingur og hélt henni fanginni í fjórtán ár í kofa úti í óbyggðum. Þar fæddist Helena og ólst upp. Hún dáði og elskaði föður sinn þrátt fyrir hörku hans og ofbeldi – þar til hún komst að sannleikanum.
Tuttugu árum síðar hefur hún afneitað fortíð sinni svo rækilega að jafnvel eiginmaðurinn veit ekkert. En þegar faðirinn sleppur úr fangelsi og hverfur inn í óbyggðirnar, konungsríki sitt, getur enginn fundið hann nema dóttirin sem hann þjálfaði og kenndi allt sem hann kunni …
Bandaríski rithöfundurinn Karen Dionne sló rækilega í gegn með Dóttur Mýrarkóngsins. Bókin hefur verið þýdd á yfir 25 tungumál og hlotið tilnefningu til fjölda verðlauna.
Ragna Sigurðardóttir þýddi.
4 umsagnir um Dóttir Mýrarkóngsins
Arnar –
„Sagan er átakanleg … og raunveruleg.“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið
Elín Pálsdóttir –
„Lætur kalt vatn renna milli skinns og hörunds.“
People
Elín Pálsdóttir –
„… spennan í söguþræðinum og köld fjarlægðin í rödd Helenu heldur lesendum rígföstum allt til loka.“
Minneapolis Star Tribune
Elín Pálsdóttir –
„Einstök … Margslungnar tilfinningar Helenu í garð föðurins og hennar sjálfrar lyfta þessari mögnuðu sögu hátt.“
Publisher’s Weekly