Bréf til Láru – íslensk klassík
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2008 | 159 | 2.290 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 1.490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Bréf til Láru – íslensk klassík
1.490 kr. – 2.290 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2008 | 159 | 2.290 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 1.490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Hið sígilda meistaraverk Þórbergs Þórðarsonar, Bréf til Láru, kom fyrst út í desember 1924. Bókin olli miklu fjaðrafoki og deilum en boðaði um leið nýja tíma í íslenskum bókmenntum. Ýmsum sveið undan hárbeittri ádeilu verksins en þó er það ekki síst stórkostleg sjálfslýsing höfundar sem gerir Bréf til Láru að sígildri bók. Óborganlegur húmor Þórbergs nýtur sín til fulls í átölum hans og skopi sem hann beinir í allar áttir – ekki síst að sjálfum sér.
Svona lýsir höfundur bókinni:
„Bréf til Láru hefur kannski haft meiri áhrif en nokkur önnur bók, sem rituð hefur verið á íslenska tungu. … Hún verkaði eins og sprenging, sem molaði niður ýmsar villukenningar og úreltar hugmyndir. Fyrir þá, sem sprenging þessi var lausn, var hún gleðiboðskapur, en [fyrir hina], sem fundu stuðning í villukenningunum og hinum úreltu hugmyndum, var hún hræðileg bók og höfundurinn vitlaus maður.“
Soffía Auður Birgisdóttir ritar formála að bókinni sem er í kiljuseríu Forlagsins, Íslensk klassík.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hjálmar Hjálmarsson les.
Hér má hlusta á brot úr hljóðbókinni: