Bætt melting – betra líf
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2018 | 299 | 3.890 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2018 | 299 | 3.890 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Meltingin er grunnur allrar starfsemi líkamans og hefur áhrif á andlega jafnt sem líkamlega líðan okkar. Í meltingarveginum er orka unnin úr fæðunni en við verðum lítið vör við starf þarmanna fyrr en eitthvað fer úrskeiðis. Þá er orsökin oftast rangt mataræði og óhollir lifnaðarhættir. Ruslfæði, ofnotkun sýklalyfja og kyrrseta hafa nánast eytt ýmsum góðum bakteríum úr þörmunum en það getur meðal annars valdið fæðuóþoli og offitu.
Læknirinn Michael Mosley hefur áður sent frá sér metsölubækurnar 5:2-mataræðið og 8 vikna blóðsykurkúrinn og gert fjölda sjónvarpsþátta um heilsu og lifnaðarhætti. Hér fer hann með okkur í ferðalag um meltingarveginn og ekki síst þarmana, þar sem milljarðar örvera vinna verk sín.
Mosley gefur ítarlegar ráðleggingar um heppilegt mataræði og í bókinni eru fjölmargar uppskriftir að girnilegum réttum sem bæta meltinguna.
Guðni Kolbeinsson þýddi.
2 umsagnir um Bætt melting – betra líf
gudnord –
„Ný nálgun sem mun breyta lífi þínu og gera þig hraustari, hamingjusamari og grennri.“
Daily Mail
Nafnlaust –
„Bætt melting – betra líf er eftir helsta heilsugúrú heimsins. Nú geta lesendur fylgt mataræðinu sem mælt er með og séð af hverju það hefur áhrif.“
Dr. Barry Marshall, nóbelsverðlaunahafi í læknisfræði og prófessor í örverulíffræði