At og aðrar sögur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2008 | - | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2008 | - | 990 kr. |
Um bókina
Smásagnasafnið At og aðrar sögur geymir sextán spennandi draugasögur sem ætlaðar eru lesendum frá 9 ára aldri. Bókin kom út í tengslum við alþjóðlegu barnabókahátíðina Draugur úti í mýri sem haldið var í Norræna húsinu.
Bókin er afrakstur smásagnasamkeppni sem Forlagið og barnabókahátíðin Mýrin stóðu fyrir. Alls bárust 106 sögur í samkeppnina og úr þeim valdi dómnefnd þrjár til að verðlauna og þrettán til viðbótar til birtingar í bókinni.
Fyrstu verðlaun hlýtur sagan At eftir Guðmund Brynjólfsson, Rauð húfa eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur hafnar í öðru sæti og Allra sálna messa eftir Iðunni Steinsdóttur í því þriðja. Aðrar sögur í bókinni eru ýmist eftir þekkta höfunda eða nýliða en þeir eru Arndís Þórarinsdóttir, Kristín Steinsdóttir, Stefán Máni, Hjörvar Pétursson, Sverrir Norland, Sirrý Sig., Jón Hjartarson, Brynhildur Þórarinsdóttir, Kolbrún Anna Björnsdóttir, Anna Kristín Kristjánsdóttir og Kristín Arngrímsdóttir.
Mál og menning gefur út.