Aðgát skal höfð í nærveru sálar
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2011 | 143 | 1.695 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 990 kr. | Setja í körfu | |
Geisladiskur | 2011 | CD | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2011 | 143 | 1.695 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 990 kr. | Setja í körfu | |
Geisladiskur | 2011 | CD | 990 kr. |
Um bókina
„Þessi bók er um lífsreynslu og úrvinnslu tilfinninga. Nú eru þeir tímar í samfélagi okkar að mörgum finnst mikilvægt að líta um öxl, skoða lífið upp á nýtt og vinna úr því sem liðið er. Skoða hvaða gildi hafa gagnast okkur vel og hvaða gildi hafa leitt okkur á villigötur.“
Á þessum orðum hefst bókin. Höfundurinn, Solveig Lára Guðmundsdóttir, hefur verið prestur í borg og sveit í yfir aldarfjórðung og unnið ötult starf við sálgæslu. Þar sem hún var lengi eini kvenpresturinn á höfuðborgarsvæðinu hafa konur ekki síst leitað mikið til hennar en hún byggir bókina á reynslu sinni af samtölum við fólk á öllum aldri við ýmsar krossgötur á lífsleiðinni.
Sólveig Lára fjallar um hvert æviskeið fyrir sig, allt frá bernsku til elliára og hikar ekki við að taka á viðkvæmum málum svo sem einelti, heimilisofbeldi, mismunandi kynhneigð, breytingaskeiði, áföllum og depurð, en bendir á hvernig vinna má úr erfiðum aðstæðum, byggja upp sjálfstraust og öðlast hugarró.
ATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókin er til á geisladiski (CD eða Mp3) sem afhendist í pósti eða úr verslun en einnig er hægt að fá hljóðbók sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra (Hljóðbók – App). Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er um 4 klukkustundir að lengd. Höfundur les.