Þrettánda sagan
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2006 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2006 | 990 kr. |
Um bókina
Margaret Lea, ung kona sem vinnur í fornbókaverslun föður síns, fær bréf frá einum þekktasta rithöfundi Bretlands, hinni torræðu Vidu Winter. Í sex áratugi hefur Vida sagt fréttamönnum uppdiktaðar sögur úr eigin lífi en hefur nú tekið ákvörðun um að segja sannleikann um sína tragísku og leyndardómsfullu ævi.
Nokkuð hikandi fer Margaret til fundar við Vidu þar sem hún reynir að komast að hinu sanna um fortíð skáldkonunnar og afhjúpar í leiðinni margt sem áður var á huldu í hennar eigin lífi. Báðar verða þær að horfast í augu við drauga fortíðarinnar og þegar sannleikurinn kemur loks í ljós verður ekki umflúið að líf þeirra kollvarpist.
Þrettánda sagan er mögnuð frásögn af fjölskylduleyndarmálum, óvæntu dauðsfalli, eldsvoða, sifjaspellum, ást og geðveiki. Þetta er listilega skrifuð frumraun höfundar, sögð af miklum tilfinningahita og töfrandi frásagnargáfu.
6 umsagnir um Þrettánda sagan
Elín Pálsdóttir –
„Bók sem maður gleypir í sig.“
Vikan
Elín Pálsdóttir –
„Hefur alla þá kosti sem prýða mega metsölubók, vel skrifuð, æsileg og dularfull.“
Árni Matthíasson / Morgunblaðið
Elín Pálsdóttir –
„Þrettánda sagan er SAGA, í henni er að finna allt sem dramatískar skáldsögur 19. aldar hafa uppá að bjóða … Frásögnin er skemmtilega gamaldags … minnti mig óneitanlega á Skugga vindsins eftir Carlos Ruiz Zafón … Sagan hélt mér fanginni frá upphafi til enda og nú langar mig í meira.“
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir / bokmenntir.is
Elín Pálsdóttir –
„ … safarík og bráðskemmtileg skáldsaga.“
Þráinn Bertelsson / Fréttablaðið
Elín Pálsdóttir –
„Einstök lestrarnautn.“
Daily Mail
Elín Pálsdóttir –
„Dýrðleg bók og fallega skrifuð fyrir þá sem elska góða frásagnarlist. Stórkostleg dægradvöl.“
The Times