Þokan
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2010 | 228 | 3.390 kr. | ||
Rafbók | 2012 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2010 | 228 | 3.390 kr. | ||
Rafbók | 2012 | 990 kr. |
Um bókina
Þokan, nýjasta bók verðlaunahöfundarins Þorgríms Þráinssonar, er dulræn og spennandi unglingasaga og sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Núll núll 9.
Það eru liðnir þrír mánuðir frá því Jóel bjargaði sér hetjulega úr klóm erlendra glæpamanna og hann er orðinn leiður á sífelldum spurningum fjölmiðlafólks um afrek hans. Hann vill bara vera í friði og hlakkar til að slaka á með vinum sínum á Snæfellsnesi heila helgi: fíflast í Línu og Tomma, hlusta á Fannar æfa sig fyrir Gettu betur og spjalla við Ásthildi og Hildigunni. En helgin verður ekki eins og Jóel sá fyrir sér. Hvað er eiginlega á seyði í norsku húsunum á Hellnum? Getur verið að fleiri en mamma Hildigunnar og Valdi vitlausi, vinur hennar, trúi á forna egypska konunga sem minna mest á fólkið í Avatar og búi sig undir upphaf nýja heimsins sem senn rís á Íslandi?
1 umsögn um Þokan
Kristrun Hauksdottir –
„Þokan er rosalega spennandi. Maður gat varla litið upp úr bókinni meðan á lestri stóð.“
María Gústavsdóttir, 14 ára