Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Þá hló Skúli: saga Skúla Alexanderssonar
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2015 | 336 | 6.890 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2015 | 336 | 6.890 kr. |
Um bókina
Skúli Alexandersson (1926–2015) fæddist í fábrotnu samfélagi norður á Ströndum sem varð miðlægt pláss með síld og sældargróða á fjórða áratug síðustu aldar. Hann flutti ungur á Hellissand, varð fljótlega oddviti hreppsins og reyndi bæði þá og síðar sem alþingismaður að betrumbæta og bylta þjóðfélagi sem var að taka á sig nýja mynd.
Hér segir frá stjórnmálaferli Skúla og atvinnuþátttöku, uppvexti og lífsævintýrum ýmsum. Skúli gerir upp við kvótakerfið en hann var ranglega sakaður um misferli með kvóta og stóð í margra ára málaferlum.
Óskar Guðmundsson er lesendum að góðu kunnur fyrir fjölmörg sagnfræðileg rit og ævisögur. Bók hans, Snorri – Ævisaga Snorra Sturlusonar 1179–1241, vakti mikla athygli og hlaut feiknalof gagnrýnenda.
2 umsagnir um Þá hló Skúli: saga Skúla Alexanderssonar
Kristrun Hauksdottir –
„Í lifandi lífi var Skúli Alexandersson eins og náttúruafl. Hvarvetna fylgdi honum hressandi gustur og kringum hann var aldrei leiðinlegt … partur bókarinnar er eins og spennandi reyfari … Óskari tekst sérlega vel að koma litríkum karakter hans til skila … Stíllinn er fjörugur, og sögumaðurinn sparar hvorki andagift né litríkt orðfæri.“
Össur Skarphéðinsson / DV
Kristrun Hauksdottir –
„Lífsgleðin skín í gegn og það er hvergi dauður punktur í bókinni … greinagóð og lipurlega skrifuð … ritið mun halda á lofti nafni þess manns, sem vildi vel og munaði um í samfélagi sínu.“
Sigurður Bogi Sævarsson / Morgunblaðið