Ævintýraferð fakírsins sem festist inni í IKEA skáp

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2014 261 3.100 kr.
spinner
Rafbók 2014 490 kr.
spinner

Ævintýraferð fakírsins sem festist inni í IKEA skáp

490 kr.3.100 kr.

Fakírinn
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2014 261 3.100 kr.
spinner
Rafbók 2014 490 kr.
spinner

Um bókina

Dag einn leggur indverski fakírinn Ajatashatru Kýrskýr Patel upp í langferð frá heimalandi sínu til Parísar með falsaðan hundrað evru seðil í farteskinu. Markmið hans er að kaupa forláta naglarúm á tilboði í IKEA og selja það hæstbjóðanda þegar heim er komið. Röð tilviljana verður til þess að fakírinn lendir í ævintýralegri Evrópureisu þar sem hann eignast undarlegustu vini á ólíklegustu stöðum.

Hér er á ferðinni fjörug og bráðfyndin saga af ferðalagi sem á engan sinn líka en um leið er tekið á sammannlegum viðfangsefnum eins og leitinni að ást, viðurkenningu og betra lífi í viðsjárverðum heimi.

Romain Puértolas hefur starfað sem plötusnúður, söngvari og lagahöfundur, tungumálakennari, túlkur og þjónn. Hann hefur einnig unnið við landamæragæslu. Ævintýraferð fakírsins sem festist inni í IKEA-skáp er fyrsta bók hans. Hún kom út í París haustið 2013, sló í gegn og hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál.

Friðrik Rafnsson þýddi.

 

„Algjörlega klikkuð!“
Le Soir

„…yndisleg háðsádeila á nútímasamfélag.“
Le Figaro Magazine

„Farsakennd, óraunveruleg, lífleg og fyndin með endalausum útúrdúrum og óvæntum uppákomum – og við biðjum um meira!“
Elle

Tengdar bækur

3.590 kr.
skuggi vindsins
990 kr.1.690 kr.
3.190 kr.
4.490 kr.
íslensku animals / icelandic dýrin
3.190 kr.
5.890 kr.
2.490 kr.
litum dyrin
2.790 kr.
4.790 kr.
4.590 kr.
3.890 kr.

INNskráning

Nýskráning