Valskan endurprentuð

Valskan, eftir Nönnu Rögnvaldardóttur, hefur hlotið frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda og salan farið fram úr björtustu vonum útgefanda. Fljótlega varð ljóst að endurprenta þyrfti bókina og fleiri eintök bárust loks til landsins í síðustu viku. Það ættu því allir að geta eignast þessa dásamlegu bók og notið þess að lesa um ástir og örlög prestsdótturinnar Valgerðar Skaftadóttur í jólafríinu.

Saga Valgerðar, sem alltaf er kölluð Valka, er stórbrotin. Hún kemur víða við á þeim rúmu 30 árum sem greint er frá í bókinni, flyst óhikað milli landshluta og er þar að auki meðal fyrstu kvenna sem boðið er að stunda nám í Danmörku. Hún upplifir fjölmarga stórviðburði, lendir til dæmis á vergangi í móðuharðindunum, og kemst í kynni við ýmsa sem áttu eftir að setja mark sitt á söguna. Umfram allt er þetta þó persónuleg saga sterkrar konu sem fylgdi hjartanu. Mennirnir sem Valka féll fyrir þóttu ekki alltaf heppilegir kostir og sorgin knúði ítrekað dyra en hún tókst á við forlögin af einstakri seiglu og útsjónasemi. Frásögnin er létt og leikandi, söguþráðurinn spennandi og þótt sagan sé harmræn á köflum er húmorinn aldrei langt undan.

Valskan er fyrsta skáldsaga Nönnu en hún er landsþekkt fyrir matreiðslubækur sínar. Hún byggir frásögnina á lífi formóður sinnar sem fæddist árið 1762 og átti ævintýralegt lífshlaup. Nanna lá yfir heimildum um Valgerði og ætlaði sér að skrifa ævisögu hennar en áttaði sig síðan á því að hún væri með í höndunum efnivið í frábæra sögulega skáldsögu þar sem hún gæti spunnið í þær eyður sem óhjákvæmilega verða þegar æviferill er rakinn í gegnum ríflega 200 ára gamlar heimildir. Viðtökur bókarinnar sýna og sanna að sú ákvörðun var greinilega rétt.

Hér má sjá nokkrar umsagnir sem bókin hefur fengið frá gagnrýnendum og ánægðum lesendum:

„Nanna hefur skrifað magnaða bók. … Valskan er líka einstök aldarfarslýsing. Hér eru leikmynd, búningar, hljóð, bragð og lykt einkar vel sviðsett.“ Eva Halldóra Guðmundsdóttir / Lifðu núna


„Nanna hefur nostrað við Völkuna sína, sögusviðið og söguþráðinn svo úr verður vel heppnuð söguleg skáldsaga sem aðdáendur þeirrar bókmenntagreinar ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum með.“ Ragnheiður Birgisdóttir / Morgunblaðið

„Það sem er skemmtilegt við hana er persónusköpunin. Bæði Valgerður og þessir mis-mislukkuðu ástmenn. Þetta er allt fólk með kosti og galla.“ Þorgeir Tryggvason / Kiljan

„Það er mjög gaman að lesa þessa bók.“ Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan

„Hún [Valskan] tikkar í öll boxin sem gera góða sögulega skáldsögu og rúmlega það. Hún er spennandi, fyndin og sorgleg saga kröftugrar konu sem neitar að vera fórnarlamb. Ef þessi bók verður ekki með þeim vinsælustu í jólabókaflóðinu þá verð ég hissa.“ Jana Hjörvar / Lestrarklefinn

INNskráning

Nýskráning