Vatnaveiði

Útgáfuboð Vatnaveiði

Í tilefni að útkomu bókarinnar Vatnaveiði – árið um kring efnir höfundur bókarinnar, Kristján Friðriksson, til útgáfuhófs í Félagsheimili Ármanna, Árósum, Dugguvogi 13, miðvikudaginn 24. júní kl.17:30.

Boðið verður upp kaffi og með því auk þess sem höfundur áritar bókina sem verður einmitt á kynningartilboði af þessu tilefni.

Allir velkomnir!

Vatnaveiði er gagnleg handbók um silungsveiði á Íslandi. Í henni er farið yfir heilt ár í lífi veiðimanns, allt frá undirbúningi og fluguhnýtingum að frágangi eftir síðustu veiðiferð ársins. Fjallað er um kjörsvæði og hegðun silungsins, mismunandi veiðislóðir, græjur og grip, og eftir því sem veiðiárinu vindur fram eru kynntar ólíkar aðferðir og gefin góð ráð til að leysa úr þeim vandkvæðum sem upp kunna að koma.

Kristján Friðriksson er veiðimönnum að góðu kunnur fyrir greinaskrif um silungsveiði á vef sínum Flugur og skröksögur. Persónulegar reynslusögur og athuganir hans munu gagnast reyndum sem óreyndum veiðimönnum og í Vatnaveiði – árið um kring gefst einstakt tækifæri til að öðlast innsýn í heim silungsveiðimanns og náttúruunnanda. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda og skýringarmynda sem skerpa á efninu.

INNskráning

Nýskráning