Fíflar

Sumardagurinn fyrsti

Fimmtudaginn 23. apríl fögnum við fyrsta sumardegi. Því verður lokað á skrifstofu okkar á Bræðraborgarstíg 7 og í versluninni á Fiskislóð 39.

Við óskum ykkur góðs sumars og minnum á að 23. apríl er ekki aðeins sumardagurinn fyrsti heldur líka dagur bókarinnar, afmælisdagur Halldórs Laxness. Við hvetjum ykkur því til þess að finna ykkur annað hvort sólríkan og fallegan stað eða hlýjan og notalegan stað (fer eftir veðri – seinni valkosturinn líklegri), grípið ykkur góða bók og njótið þess að lesa.

Gleðilegan fyrsta sumardag, gleðilegan dag bókararinnar og til hamingju Dóri!

INNskráning

Nýskráning